hola!

09.01.2008 13:30:34 / felga

FLETTA gengur ekki!

Okei ég get ekki bloggað útaf því að þ og ð virkar ekki... DEMIT!

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 12:54:10 / felga

Loksins Loksins

Blogg sem kanski bara ég hef beðið lengi eftir :D og er skrifað með ógeðslega litlum stöfum afþvi þessi heimskulegi browser sýnir ekki toolbarinn! En já... fyrst ég er komin með nýja tölvu sem er ekki með ónýtt móðurborð get ég farið að draga þesssa síðu aftur til lífsins... Er byrjuð í skólanum og sona vioða gaman.. Sit bara inní kríli núna að reyna ða klára eitthvað dönskuverkefni.... það gengur ekkert of vel.. er að spá í að fara í verkefnatíma bara... En já.. ég er að spá í að downloada firefox og prófa svo að blogga aftur.. þetta gengur ekki!

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 20:47:29 / felga

Bloggið um nammipokann *rop*

NEI HAFDÍS!!! ÉG ÆTLA AÐ BLOGGA! EEEEKKKI ÞÚ!!!

 

Hæ krakkar.. hér við hliðina á mér liggur næstum tómur nammipoki... fyrir um það bil 5 mínútum var hann næstum fullur!!! núna eru 2 nömm eftir í honum.... já krakkar... Hafdís er hakkavél!!!

En ég ætlaði ekki að blogga um það... í rauninni ætlaði ég... þar sem stutt er til jóla.. að blogga um hann vin okkar Jesús! Jesús var mjög merkilegur maður... hann var bara uppi á vitlausum tíma.. ef hann væri uppi í dag væri hann örugglega besti pólitíkus í heimi! Og ef baugsmálið eða orkuveitumálið og það kjaftæði hefði verið uppi þá... væri löngu búið að grýta alla alþingismenn til dauða! og þá sérstaklega jóhannes í bónus og björgólf thor! 

en ég ætlaði bara að blogga smá einsog vanalega til að láta vita að ég væri á lífi... ég kanski geri eitthvað við þessa síðu og byrja svo að blogga eitthvað af viti þegar ég byrja í skólanum... þá verð ég komin með tölvu sem virkar og vonandi búin að finna útur nettengingunni heima...

en þangað til... adios ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 03:32:45 / felga

Party... yeeehh

Jæja.. það er soldið síðan maður hefur bloggað... en þar sem allir eru að baka pitsu í þessu blessaðað partyi.... eða hoppa uppá húsþökum... þá ákvað ég bara að bogga fyrst að ég komst í tölvu... tölvan mín er ónýt :(

EEEENNN ... ég nenni ekki að blogga meira... langaði bara að blogga smá.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 17:41:39 / felga

í tilefni dagsins

Jæja ætli maður verði ekki að blogga í dag fyrst það er svona sérstakur dagur? ef ég fæ engin komment verð ég brjál!

Er ekkert búin að blogga í langan tíma ... hef bara haft allt og ekkert að gera.... er bara búin að vera með Petreu 24/7 síðan við hittumst :D margt sniðugt búið að bralla saman hehe.. förum ekkert nánar útí það samt...

Ég er samt ekki mjög sátt... fékk sekt útaf eikkerri stúpid hraðamyndavél sem náði mér á 120 eða eitthvað... og fékk hvortki meira né minna en 50,000 kall í sekt.. lækkar reyndar niðrí 37,000 ef það er borgað fyrir timan... samt... ógeðslega mikið....

En ég veit samt ekkert hvað ég á að blogga um nema hvað Petrea er æðisleg... litla krúttið mitt :D LOFJÚ

Helga Gangstah is out ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 15:18:40 / felga

Busaball FSN

Jæja.. nú kanski les eikker bloggið mitt til tilbreytingar... eða er það bara tóm bjartsýni í mér?

Allavena... þá var Busaball FSN í gær.. vorum heima hjá Petreu (papriku) Fyrst bara ég, Petrea, Agnes, Hafdís og Lilja... svo komu Keli og Jón Óli og við byrjuðum á að reka þá í sturtu því það var ógó fiskalykt af þeim!:o svo var okkur boðið heim til Söndru í teiti... vorum þar í sona... hmm.. korter kanski og þá voru allir að fara á ballið... en þar sem ég vissi ekki að það þyrfti eikkern í skólanum til að bjóða mér á ballið þannig að ég komst ekki... Hitti Hrannar á leiðinni og ég ákvað að ég ætlaði að draga hann í vinnuna í dag. Honum leist ekkert vel á það :lol: en afþví ég komst ekki á ballið fórum bara ég, Jón Óli og Keli heim til þeirra að tsjilla... Svo eftir sona hálftíma var ég lika komin með þennan agalega hausverk... held að ég hafi aldrei fengið sona mikinn hausverk áður!:S þannig að ég fór að sofa.... var búin að sofa í kanski sona klukkutíma þegar ég vakna við að það er fullt af fólki komið! Fer fram á náttfötunum geggjað mygluð og joina fólkið í teitinu... svo fór fólkið um sona 4  þegar Petrea rak þau út.. (Keli var nebblega að reyna að sofa.. þurfti að mæta á sjó í dag) En kristó varð samt eftir og ég, Kristó, Petrea og Jón Óli sátum frammi í smá tíma þangaðtil allir voru að drepast úr þreytu... Hélt að það yrði geðveikt erfitt að vakna um morguninn en það gekk! Það gekk meira að segja að vekja Hrannar :o 

Var svo búin að vinna um hálf 2 :s aldrei neitt að gera í vinnuni minni núna...en það er svosem ágætt þegar maður er að drepast úr þreytu! 

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra.... kv. Don Calioni


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 17:53:01 / felga

VANTAR MEÐLEIGJANDA!!!

ER EINHVER ÞARNA ÚTI TIBÚINN TIL AÐ LEIGJA MEÐ MÉR OG HILDI!!!! PLÍS ÞETTA ER NEYÐARÁSTAND!

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 23:26:32 / felga

Komin austur

Jæja.. þá er maður kominn aftur austur til mömmu og pabba... er að fara aftur að vinna á morgun.. verð að fara að draga mig uppúr þessari leti ;) fínt hérna fyrir austan svosem þótt það sé nú alltaf skemmtilegra fyrir vestan... Mamma er eitthverstaðar fyrir norðan að góla úr sér raddböndin og sytir mín hefur varla sést heima síðan við komum... þannig að ég og Pabbi erum bara að mongólítast hérna heima með kofann.. svosem ágætt...

Hitti Júlíu í gær og var aðeins með henni... Sættist líka við Eygló og Adda... en ég hef ekkert smá mikið að gera á morgun! ég þarf að panta mér tíma í klippingu... fá að þvo eftir vinnu því að þvottavélin hér er biluð:evil: og hringja í besta fyrir vestan að sækaj um vinnu... og ef ég fæ ekki vinnu þar er ég screwed... get svosem alltaf farið aftur í fiskinn þótt það sé nu ekki mjög eftirsóknarvert... en maður gerir það sem maður þarf...

svo þarf ég lika að kaupa mér bíl :s veit eitthver um ódýran bíl handa mér??? svo kemur það bara í ljós hvernig þetta verður með húsnæðið okkar ágústu.. vantar reyndar helst einn annan í viðbót til að leygja með okkur.... eikker game?

en ég ætla ekki að hafa þetta langt... ætla að fara að sofa svo ég mæti ekki grautmygluð á morgun... þannig að ég segi bara góða nótt... ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 17:52:51 / felga

sucky and totty

Óskar; *slurp slurp slurp* mmh.. mér finnst gott að sjúga tvo í einu

Helga;  vertu feginn að það er enginn samkynhneigður hérna nálægt

Óskar; nei einmitt.. þá mundi heyrast "oskar, whould you like to engage an homosexual intercourse"

Helga; iss þú mundir fíla það

Óskar; boy whould I... FLUGGENKLIGGENKLEINEN!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 19:02:08 / felga

Shni Shna Shnabbi

SHNI SHNA SHNABBI... SHNABBI SHNABBI SHNABBI!!!

 

 

vildi bara diela þessu með ykkur :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 16:50:28 / felga

....

Ætla bara að hafa þetta stutt til að láta vita að ég er að fara vestur og kem aftur til EGS eftir tvær vikur.. lof jú ol :*


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 17:47:05 / felga

Grundarfjarðardagarnir... yeeah

Jæja þá er maður kominn heim til Egilsstaða eftir grundarfjarðardagana... það var mjög gaman... mikið af golden moments þar á ferð.... Rúnar... "einn lítill, tveir litlir, þrír litlir fing-... ertu búinn? - góða nótt!!" (lol)

Ég keyrði ein til Akureyrar en þaðan komu Anna og Bubbi með mér. Vorum komin um 3 leytið minnir mig... man það samt ekki alveg (lögðum sko af stað á fimmtudeginum) Gisti heima hjá Árna fyrstu nóttina því ég gleymdi að láta ömmu vita að ég kæmi á fimmtudeginum en ekki föstudeginum og vildi ekki vekja kerlingar krúttið. Á föstudaginn skruppum við svo inní hólm, ég, árni og rúnar, rúnar og árni voru orðnir svo pirraðir á sms hljóðinu mínu, og ég var alltaf að fá sms, að þeir ætluðu að henda símanum mínum útum gluggann!:o svo fékk ég að keyra til baka :D var kanski að standa mig of vel við aksturinn en slapp mjög vel þegar ég mætti löggunni :S Svo kom nottlega kjartan á föstudaginn... eða Sigrún Arna Jónsdóttir öðru nafni (lol) Ég var að keyra allt föstudagskvöldið, vorum fyrst í partyi hjá árna og fór aðeins fyrir utan ballið en fór svo heim um hálf 6 leytið...

byrjaði laugardaginn á að fá mér pitsu með ágústu og önnu lilju og rúnar og sigurborg joinuðu... var svo bara eitthvað á rúntinum þangað til skrúðgangan byrjaði... Ég ákvað að vera í gulahverfinu. Ég var nottlega bara í heimsókn og gat bara valið hverfi til að vera í... og flestir sem ég var með voru í gula þannig að ég fór bara með þeim... Vorum niðri á Bryggju þangað til að óskar gat sprengt blöðrurnar í  bílnum sínum og farið með bílinn sinn í burtu... það var sko sona leikur þar sem maður átti að giska hvað væru margar blöðrur í bílnum.. þær voru 84... ég giskaði á 48 held ég og ragna á 55... bjóst ekki við að það kæmist svona mikið af blöðrum í svona lítinn bíl :p (geðveikur bíll none the less) smöluðum þá í party heima hjá árna.. það entist ekki lengi því bryggjuballið var að byrja. Fórum þangað og Matti vinkaði mér frá sviðinu :o Veittum því líka athygli hvað kamrarnir hristust mikið... hvað ætli hafi verið í gangi þar... hmmm... þegar bryggjuballið var svo búið var aftur haldið til árna í smá stund allavena þangaðtil ballið á kaffi byrjaði... vorum þar fyrir utan í eitthvern tíma þangað til fólkið fór að týnast þaðan... löbbuðum þá heim til óskars því hann þurfti að ná í meiri bjór í skottið hjá sér... svo þegar við vorum á leiðinni heim til árna aftur komu eitthverjir heimskir ógeðslegir gaurar sem hentu eitthverri tuskudúkku í okkur og bjórinn fór útum allt... sveiattan... var hjá árna í eitthvern tíma og fór svo heim um 6 eða hálf 7... man það ekki alveg...

Þegar ég vaknaði svo á sunnudaginn klukkan hálf 1 held ég hringdi ég í árna og bað hann að sækja mig.. þá var hann vaknaður og búinn að SKÚRA! maður finnur ekki marga karlmenn sem eru svona :p lögðum svo bara af stað um hálf 2 minnir mig. ég keyrði á staðarskála og anna keyrði þaðan á akureyri... ætlaði að reyna að sofa en NEEII.. þau þurftu að vera í eitthverjum asnalegum bílaleik.... heimleiðin frá akureyri var svo mjög leiðinleg og ég var mjög tæp á að verða ekki bensnínlaus.. en það rétt slapp...

En ég ætla að setja inn myndir fljótlega og nokkra gullmola í safnið... endilega skoðið... adios ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 18:03:05 / felga

Jólasveinnin minn, káti karlinn minn kemur með jólin með séééér!

Jæja ég er að spá í að skella inn einu "almennilegu" bloggi ef þetta má kallast það. En ég ætla að byrja á að tala um kynlíf geitunga.... Geitungar hafa ekki samfarir einsog aðrar flugur að mér skylst. Biggi var í vinnuni um daginn og rakst þá á tvo geitunga "getting busy" ;O en semsagt t.d hrossaflugur sitja bara grafkyrrar á vegg allan tíman... en Biggi sá geitunginn actually riðlast á hinum... bara duracell ofur turbo á þetta!

En þetta er soldið ógeðfelld umræða... Annars er ég ekki búin að gera skít í dag nema fara í sturtu, hanga í tölvunni og éta ís og nammi... En í fyrradag minnir mig horfði ég á fréttirnar og sá þar myndband af eikkerjum Atla að tala um lífsskoðanir... ég hef ekki hugmynd um hvað þessi gaur er gamall en shit hvað þetta var fyndið! greinilega upprennandi snillingur þarna á ferð! Eins gott að ég er ekki að fara að flytja í grafarvoginn... þá þyrfti ég sennilega að kaupa mér  bling!!!!

Ég vil líka þakka henni Ídu maríu að hringja í mig í gærkvöldi og vekja mig til að tilkynna mér að hún og Ágústa væru á egs... svo gátu þær ekki einusinni hitt mig í dag! fóru bara í sund og fóru frekar á HÖFN í staðinn fyrir að hitta mig... pff...

En grundó dagarnir eru á næstu grösum.. eða nánar tiltekið um næstu helgi! Ég hef ætlað mér að hafa heavy gaman þar enda getur varla mikið farið úrskeiðis með grundfirðingum á grundfirsku djammi! bara leiðinlegt að fjóla litla handleggsbrotna gerpi geti ekki komið líka :( en það reddast

en að lokum... tjekkið þetta út www.youtube.com/atli123 mæli með eintalinu um lífsskoðanir ;)

Kveð að sinni með mini súkkulaði í hönd og bros á vör;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 22:42:12 / felga

saga

einusinni var stelpa sem hét Helga... hún var voða voða gleymin. Hún gleymdi meira að segja trúlofunar afmælinu sínu og kærastans síns. Hún varð voða voða leið þegar hún fattaði það. Kærastinn hennar hét Biggi. Hann var yndislegasti og fallegasti og flottasti strákurinn í öllum heila heiminum og að sjálfsögðu elskaði Helga hann meira en allt annað í heiminum. Og af því að henni skyldist elskaði hann hana alveg jafn mikið. En stundum var Biggi leiður og þá leið Helgu einsog það væri allt henni að kenna... þá varð Helga enþá  leiðari. En þá ákvað helga bara að fara að sofa.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 22:30:50 / felga

Spastískur fitukirtill!

ég held að það sé villa í kerfinu... samkvæmt teljaranum hérna á síðunni eru 112 búnir að koma inná síðuna í dag en ég fæ aldrei nein helvítis komment... en ég nenni ekki að blogga...

 

BLESS


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10